frístundakort

rig

 

 

Reykjavik International Games

english

Badminton hefur verið hluti af Reykjavik International Games frá upphafi. Það hefur verið TBR sem hefur séð um framkvæmd mótsins. Í upphafi voru það aðallega Danir sem mættu til leiks auk Íslendinganna. Það hefur þó breyst örlítið og eru það aðallega Svíar sem sækja mótið núna.

Mótið er unglingamót og er keppt í öllum aldursflokkum; U13 (fæddir '99 og síðar), U15 (fæddir '97 og '98) , U17 (fæddir '95 og '96) og U19 (fæddir '93 og '94). Hingað til hafa aðeins verið erlendir keppendur í U19 flokknum. Árið 2011 markar þó tímamót því að í fyrsta sinn voru keppendur í yngri flokkunum líka. Það komu spilarar frá Færeyjum í bæði U13 og U15 auk þess sem Svíar sendu leikmenn í elsta flokkinn eins og verið hefur undanfarin ár.

RIG

Öllum þátttakendum er heimilt að skrá sig í allar greinar, þe. einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.

TBR býður upp á frábæra aðstöðu í Laugardalnum í húsi sem er eingöngu ætlað til badmintoniðkunnar. Húsið hefur 12 badmintonvelli á viðargólfi.

Dagskrá Reykjavík International Games 2011

föstudagur 20. janúar: Setningarathöfn í Laugardalshöll kl. 19:00
laugardagur 21. janúar: Keppni hefst kl 10:00 og leikið fram eftir degi
sunnudagur 22. janúar: Undanúrslit hefjast kl 10:00 og úrslit á eftir.

Úrslit undanfarinna ára