01.09.2011
Vignir tekur við trimminu
Eins og þeim sem stunda trimmtímana vinsælu er kunnugt um þá hætti Kjartan Nielsen sem stjórnandi tímanna síðasta vor. Eftirmaður hans verður Vignir Sigurðsson.
Vignir hefur starfað hjá félaginu við hin ýmsu störf undanfarin ár. Vignir er með þjálfaramenntun og starfaði síðast liðinn vetur sem þjálfari hjá unglingadeild Aftureldingar í Mosfellsbæ. Hann fór einnig með hóp á vegum Badmintonsambands Íslands í æfingabúðir sem kallast European Summerschool og er á vegum evrópska badmintonsambandsins. Samhliða fararstjórn sat Vignir þjálfaranámskeið og tók þátt í þjálfun á námskeiðinu. Þá mun Vignir einnig sjá um byrjenda og framhaldsnámskeið félagsins í vetur.
Fyrsti trimmtíminn undir stjórn Vignis verður sunnudaginn 11. september
TBR hlakkar til samstarfsins við Vigni í vetur og vonast til að það verði bæði faglegt og farsælt og muni stuðla að áframhaldandi kröftugu trimmstarfi innan veggja félagsins

|