22.02.2012
Unglingar á ferð og flugi
Unglingar í keppnishópi félagsins fóru í keppnisferð til Danmerkur nú fyrir skemmstu. U19 ára hópurinn fór til Næstved og U17 hópurinn smellti sér til Randers. Hæst ber að nefna að Stefán Ás Ingvarsson (U17) sigraði í einliðaleik í sínum flokki.
Einnig sigruðu þeir Daníel Jóhannesson og Eiður Ísak Broddason í tvíliðaleik (U17) og Daníel og Sigríður Árnadóttir sigruðu í tvenndarleik (U17). Sigríður sigraði einnig í einliðaleik (U17) og tvíliða leik ásamt Jónu Hjartardóttur (U17).
Hjá U19 hópnum komst Snorri Tómasson í úrslit í einliðaleik en þurfti að láta sér annað sætið nægja að þessu sinni. Snorri komst einnig í úrslit í tvenndarleik ásamt Elisabeth Christensen.
|