19.09.2011
Miniton - Kennsla fyrir 5-8 ára börn
TBR kynnir Miniton til sögunnar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Miniton er hugsað fyrir börn á aldrinum 5-8 ára sem grunnur að badmintoníþróttinni. Til að hægt sé að framkvæma hugmyndina á bak við Miniton er það krafa að fullorðinn einstaklingur mæti ásamt barni í hvern einasta tíma þar sem þeir fullorðnu taka ákveðinn þátt í æfingum barnanna.
Skipt verður í tvo hópa og kennt á sunnudögum. Kennsla 5-6 ára barna fer fram frá kl 15:10 - 16:00 og kennsla 7-8 ára barna frá kl 16:00-16:50.
Miniton hefur verið að skjóta rótum víðs vegar um Evrópu og hefur gefist gríðarlega vel, enda börn afskaplega móttækileg fyrir nýjungum á þessum aldri. Hugmyndin er að kenna börnunum að gera hlutina rétt strax frá upphafi svo eftirleikurinn verði þeim auðveldari.
Yfirumsjón með námskeiðinu hefur Helgi Jóhannesson og mun hann koma eitthvað að þjálfun einnig. Annar þjálfari í sal verður Vignir Sigurðsson.
Upplýsingar um námskeiðið gefur yfirþjálfari TBR Jóhann Kjartansson í síma 858-9011 og einnig með tölvupósti á netfangið |