frístundakort

rig

 

 

09.01.2012

Jólamót Trimmara

Jólamót Trimmara fór fram þann 8. janúar sl. Tæplega 40 manns tóku þátt í mótinu sem stóð yfir einn sunnudagseftirmiðdag. Trimmótin eru að skipa fastan sess í starfsemi félagsins og fleiri og fleiri taka þátt með hverju mótinu sem líður.

Fyrirkomulagið á mótinu er þannig að leikinn er tvíliðaleikur og eru menn dregnir saman fyrir hverja umferð. Leiknar eru 5 umferðir og sigurvegari fundinn með útreikningi sigra og stiga eftir þessar 5 umferðir.

Sigurvegari í karlaflokki varð Ingimar Friðriksson og í öðru sæti varð Birgir Ólafsson. Í kvennaflokki sigraði Sólveig Karlsdóttir og í öðru sæti varð Sólveig Jónsdóttir.

Birgir, Ingimar, Sólveig og Sólveig

Eftir Jólamótið er svo sá Trimmari sem hefur staðið sig best á haustönninni verðlaunaður. Besti Trimmari haustisins 2011 er Eiríkur Sigurðsson

Eiríkur Hausttrimmari