frístundakort

rig

 

 

14.11.2011

TBR-ingar stóðu sig vel á Iceland International

TBR-ingar stóðu sig mjög vel á Iceland International sem fram fór um helgina. Tvö gull og eitt silfurverðlaun komu í hlut TBR-inga á mótinu. Ragna Ingólfsdóttir sigraði í einliðaleik kvenna fimmta árið í röð, Snjólaug Jóhannsdóttir og Tinna Helgadóttir sigruðu í tvíliðaleik kvenna og þeir Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason höfðnuðu í öðru sæti í tvíliðaleik karla.

Í einliðaleik karla léku til úrsltia þeir Mathias Borg frá Svíþjóð og Tony Stephenson frá Írlandi. Það fór svo að Mathias Borg sigraði 21-17 21-18 og fagnaði sínum fyrsta alþjóðlega titli í einliðaleik á ferlinum.

Mathias Borg


Í einliðaleik kvenna sigraði Ragna Ingólfsdóttir eins og áður sagði. Ragna sigraði Akvile Stapusaytite frá Litháen. Ragna sem fyrirfram var talin sterkust í einliðaleik kvenna í mótinu lenti þó í basli með andstæðing sinn í úrslitaleiknum en tóks þó að lokum að innbyrða sigur 21-18 17-21 21-17.

Ragna Ingólfsdóttir

Í tvíliaðleik karla léku til úrslita þeir Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helgason annars vegar og Mathias Kany og Thomas Dew-Hattens frá Danmörku hins vegar. Helgi og Magnús byrjuðu af krafti og unnu í fyrstu lotu 21-16. Danirnir svöruðu í lotu tvö og unnu 21-12. Í oddalotunni var jafnræði á með liðunum en um miðbik lotunnar sigu þeir dönsku fram úr og sigruðu 21-16.

Mathias Kany og Thomas Dew-Hattens

Í tvíliðaleik kvenna voru í úrslitum þær Snjólaug Jóhannsdóttir og Tinna Helgadóttir og mótherjar þeirra voru Celilie Nystrup Wegener Clausen og Fie S. Christensen. Þessi leikur varð því miður aldrei nein skemmtun því vegna meiðsla hjá annarri dönsku stelpnanna urðu þær að gefa leikinn þegar staðan var 11-4 í fyrstu lotu fyrir þær íslensku.

Tinna og Snjóalaug

Í tvenndarleiknum léku til úrslta Thomas Dew-Hattens og Louise Hansen frá Danmörku og Tony Stephenson og Sinnead Chambers frá Írlandi. Fyrri lotan var öll í járnum en þau dönsku reyndust sterkari á lokasprettinum og sigruðu 23-21. Eftirleikurinn var svo fremur auðveldur og kláruðu þau dönsku leikinn með því að sigra 21-13 í seinni lotunni. Þess ber þó að geta að tvö íslensk pör léku til undanúrslita í tvenndarleiknum. Þau Magnús Ingi Helgasoni og Tinna Helgadóttir og Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir

Thomas Dew-Hattens og Louise Hansen