frístundakort

rig

 

 

05.09.2011

Atli og Snjólaug byrja af krafti

Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir byrja nýja tímabilið af krafti. Þau sigruðu í Einliðaleiksmóti TBR sem fram fór 2.sept sl. Sigur þeirra beggja var nokkuð öruggur og tapaði Atli ekki lotu allt mótið en Snjólaug lenti í einni oddalotu í undanúrslitum gegn Karitas Ósk Ólafsdóttur.

Atli lék til úrslita gegn Arthúri Geir Jósefssyni og sigraði örugglega 21-14 og 21-17. Greinilegt að Atli hefur æft af krafti í sumar og kemur virkilega vel stemmdur fyrir komandi tímabil.

Arthúr og Atli
Arthúr Geir Jósefsson og Atli Jóhannesson

Snjólaug lék gegn Þorbjörgu Kristinsdóttur. Leikurinn endaði 21-16 21-16 og var sigurinn eiginlega aldrei í hættu.

Þorbjörg og Snjólaug
Þorbjörg Kristinsdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir

Til að sjá nánari úrslit einstakra leikja smellið hér