frístundakort

rig

 

 

23.01.2012

TBR A-Landsliðið Deildarmeistari 2012

Deildakeppni BSÍ fór fram í TBR húsinu nú um helgina. Keppt var í Meistara- A- og B-deild. Lið TBR A-Landsliðið sigrað með miklum yfirburðumi í Meistaradeild og er TBR þar með Íslandsmeistari félagsliða 2012. Liðið fór í gegnum mótið án þess að tapa svo mikið sem einum leik og tapaði aðeins 4 lotum allt mótið. Sigurliðið skipuðu þau Atli Jóhannesson, Helgi Jóhannesson, Kári Gunnarsson, Magnús Ingi Helgason, Róbert Þór Henn, Karitas Ósk Ólafsdóttir, Ragna Ingólfsdóttir, Rakel Jóhannesdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir.

TBR A Landsliðið
Lið TBR A Landsliðið sigraði með yfirburðum

Í Meistaradeildinni voru sex lið skráð til leiks þar af fjögur úr TBR. Hin tvö liðin voru lið ÍA og BH. Það er skemmst frá því að segja að TBR liðin röðuðu sér í fjögur efstu sætin í mótinu.

TBR Öllarar 2
Lið TBR Öllarar 2 endaði í öðru sæti í A-Deildinni

Í A-deildinni átti TBR þrjú lið af þeim fjórum sem léku til undanúrslita. Fjórða liðið var lið frá BH. Úrslitaleikurinn var milli TBR-Öllara 2 og BH liðsins. Lið Öllaranna var grátlega nálægt sigri en þau urðu að láta sér annað sætið lynda að þessu sinni.

TBR Þrumuguðir
TBR Þrumuguðirnir enduðu í öðru sæti í B-deildinni

Í B-deild voru tvö TBR lið í úrslitariðlinum, en þriðja liðið frá BH. Því miður lukkaðist það ekki TBR liðunum að sigra og lent þau þar með í öðru og þriðja sæti.