frístundakort

rig

 

 

09.05.2011

Vormót trimmara 2011

Vormót trimmara fór fram í TBR sunndaginn 7. maí sl. Keppt var í einliðlaleik karla, tvíliðaleik karla, tvíliðaleik kvenna og tvenndarleik. Þátttaka var góð og mótið jafnt og spennandi.

í einliðaleik karla léku til úrslita þeir Egill Magnússon og Conor Byrne. Conor vann fyrstu lotuna 21-17 en eftir það vann Egill 22-20 og 22-20 og gat því fagnað sigri í einliðaleik.

einl kk
Egill og Conor

Í tvíliðaleik karla léku til úrslita þeir Högni Hróarsson og Snorri Hreggviðsson annars vegar og Harri Ormarsson og Ómar Sigurbergsson hins vegar. Harri og Ómar byrjuðu betur og sigruðu í fyrstu lotu 21-7. Eftir þetta vöknuðu þeir Högni og Snorri og sigruðu í næstu lotu 21-14. Í oddalotunni höfðu þeir Harri og Ómar svo betur og sigruðu 21-12 og voru þar með búnir að tryggja sér sigur í mótinu.

tvil kk
Ómar og Harri

Í tvíliðaleik kvenna hefði mátt vera betri þátttaka en eingöngu tvö lið voru skráð til leiks. Þessi lið léku því úrslitaleikinn í mótinu en þetta voru þær Arndís Sævarsdóttir og Svanfríður Oddgeirsdóttir annars vegar og Sylvía Gústafsdóttir og Ástildur Dóra Kristjánsdóttir. Leikurinn fór í þrjár lotur og endaði með því að þær Arndís og Svanfríður sigruðu 21-17 14-21 21-11.

tvíl kvk
Arndís, Svanfríður, Ásthildur og Sylvía

Þrátt fyrir að hafa tapað í einliðaleiknum var Conor Byrne kominn aftur í tvenndarleiknum ásamt Sylvíu sem einnig hafði tapað tvíliðaleiknum. Það kom aldrei til greina hjá þeim tveim að fara heim með tvö silfur hangandi um hálsinn. Þau mættu í úrslitum þeim Eiríki Sigurðssyni og Önnu Harðardóttur. Conor og Sylvía sigruðu örugglega 21-13 21-12.

mix
Conor, Sylvía, Anna og Eirkíkur