Vetrarmót unglinga 2010
TBR hélt sitt árlega Vetrarmót unglinga nú um helgina. Mótið var vel sótt og var keppt í öllum flokkum í öllum greinum. Unglingaráð TBR sá um stjórn mótsins ásamt Vigni Sigurðssyni. Allir bestu unglingar landsins tóku þátt og var mótið jafnt og spennandi á öllum vígstöðvum. Töluvert var um að leikmenn spiluðu upp fyrir sig í mótinu, það er að segja spila í eldri flokki.
Hnokkar/Tátur (U13)
Í einliðaleik hnokka sigraði Alexander Örn Kárason úr ÍA. Hann sigraði í úrslitum, félaga sinn úr ÍA, Steinar Braga Gunnarsson. Leikurinn endaði 25-23 21-15. Þess ber þó að geta að Davíð Bjarni Björnsson, úr TBR, núverandi Íslandsmeistari í Hnokkaflokki spilaði í sveinaflokki í mótinu. Í tátuflokki sigraði Harpa Hilmisdóttir úr UMSB en hún sigraði í úrslitum Margréti Nilsdóttur úr TBR 21-11 21-13.Tekið skal fram að Alda Karen Jónsdóttir úr TBR og núverandi Íslandsmeistari í tátuflokki spilaði upp fyrir sig í mótinu í einliðaleik. Í tvíliðaleik hokka voru aftur á ferðinni þeir Alexander Örn og Steinar Bragi úr ÍA en þeir sigruðu þá Andra Árnason og Ormar Þór Harrason úr TBR 21-16 21-15 í úrslitaleik. Sigurvegarar í tvíliðaleik í tátuflokki urðu þær Alda Karen Jónsdóttir og Margrét Nilsdóttir úr TBR en þær sigruðu Eyrúnu Guðjónsdóttur og Ingibjörgu Sóley Einarsdóttur úr BH 21-7 21-16. Í tvenndarleik sigruðu þau Alexander Örn og Harpa. Þau lögðu að velli í úrslitum Steinar Braga og Dalrós Guðmundsdóttur 21-11 21-14.

Alexander Örn og Steinar Bragi
|

Harpa og Margrét
|
Sveinar/Meyjar (U15)
Þó nokkuð var um óvænt úrslit í einliðaleik sveina í mótinu. Bæði þeir Pálmi Guðfinnsson og Kristófer Darri Finnsson, báðir úr TBR, sem voru fyrir mótið taldir sterkastir töpuðu í undanúrslitum. Pálmi tapaði fyrir Stefáni Ás Ingvarssyni úr UMFA og Kristófer tapaði fyrir Helga Gretari Gunnarssyni úr ÍA. Það var svo Helgi Gretar sem sigraði Stefán Ás í úrslitum 21-19 21-19. Þess bera að geta að Daníel Jóhannesson sem sigraði á Reykjavíkurmóti unglinga fyrir um mánuði síðan spilaði í drengjaflokki. Í einliðaleik meyja gerði Alda Karen Jónsdóttir úr TBR sér lítið fyrir og sigraði þrátt fyrir að vera að spila upp fyrir sig. Hún sigraði í úrslitum Línu Dóru Hannesdóttur úr TBR 21-18 28-26 í hörkuleik, en bæði Sigríður Árnadóttir og Jóna Kristín Hjartardóttir sem hingað til hafa verið sterkastar í flokknum kepptu í telpnaflokki. Í tvíliðaleik í sveinaflokki komust þeir Halldór Axel Axelsson og Helgi Gretar Gunnarsson úr ÍA nokkuð óvænt í úrslit en urðu að láta í minni pokann fyrir þeim Kristófer Darra Finnssyi og Davíð Bjarna Björnssyni úr TBR en þeir félagar voru fyrir mótið taldir líklegastir til sigurs. Leikurinn endaði 21-9 21-9. Í tvíliðaleik meyja sigruðu þær Lína Dóra Hannesdóttir og Unnur Dagbjört Ólafsdóttir þær Gunnhildi Gunnarsdóttur og Sigríði Rögnu Sigurðardóttur en þær koma allar úr TBR. Lína og Unnur sigruðu 21-15 og 21-19. Í tvenndarleiknum sigruðu svo þau Davíð Bjarni og Alda Karen sem bæði voru að spila upp fyrir sig. Þau lögðu í úrslitaleik Kristófer Darra og Margréti í hörkuleik 14-21 21-11 21-16.

Helgi Gretar, á myndina vantar Stefán Ás
|

Alda Karen og Lína Dóra
|
Drengir/Telpur (U17)
Í drengjaflokki sigraði Steinn Þorkelsson úr ÍA. Hann sigarði í úrslitum Þorkel Inga Eriksson úr TBR 21-17 15-21 21-9. Steinn var fyrirfram talinn sigurstranglegastur í flokknum en þess ber þó að geta að bæði þeir Gunnar Bjarki Björnsson og Thomas Þór Thomsen úr TBR spiluðu báði í piltaflokki. Í telpnaflokki sigraði Hulda Lilja Hannesdóttir úr TBR en hún lagði á leið sinni í úrslit ma. Alexöndru Ýr Stefánsdóttur úr ÍA, sem fyrir mótið var talin sigurstranglegust í flokknum. Hulda sigraði í úrslitum Unni Björk Elíasdóttur 21-16 22-20.Í flokkinn vantaði þó meistaraflokksleikmennina Margréti Jóhannsdóttur og Söru Högnadóttur en þær spiluðu báðar í stúlknaflokki í þetta sinn. Í tvíliðaleik í drengjaflokki sigruðu tvíburarnir Steinn og Jóhannes Þorkelssynir. Í úrslitum léku þeir gegn Hilmarí Páli Hannessyni úr TBR og Arnóri Tuma Finnssyni úr UMSB. Bræðurnir unnu leikinn örugglega 21-12 21-9. Í telpnaflokki í tvíliðaleik sigruðu þær Hulda Lilja úr TBR og Ivalou Birna Falck-Pedersen úr TBA. Þær lögðu í úrslitum þær Unni Björk og Alexöndru Ýr 21-14 21-16. Í tvenndarleiknum sigruðu svo þau Þorkell Ingi Eriksson og Margrét Jóhannsdóttir. Þau sigruðu Daníel Jóhannesson og Sigríði Árnadóttur í úrslitum en þau koma öll úr TBR. Leikurinn endaði 21-18 21-17.

Steinn og Þorkell Ingi
|

Hulda Lilja, á myndina vantar Unni Björk
|
Piltar/Stúlkur (U19)
Í piltaflokki var hart barist en sigurvegari varð Gunnar Bjarki Björnsson úr TBR. Frábær árangur þar sem Gunnar Bjarki spilaði upp fyrir sig í mótinu. Hann fékk þó harða samkeppni og í úrslitum spilaði Gunnar við Thomas Þór Thomsen úr TBR sem líka var að spila upp fyrir sig. Leikurinn var jafn og spennandi og endaði 18-21 21-13 27-25. Í stúlknaflokki sigraði landsliðkonan Rakel Jóhannesdóttir nokkuð örugglega. Í úrslitaleiknum stóð hinu megin við netið ungstyrnið Margrét Jóhannsdóttir en hún spilaði upp fyrir sig í mótinu. Rakel vann þó sannfærandi sigur 21-9 21-13. Í tvilíðaleik í piltaflokki sigruðu BH-ingarnir Kristinn Ingi Gunnarssong og Ólafur Örn Guðmundsson. Þeir léku til úrslita gegn Gunnari Bjarka og Thomasi og höfðu betur 21-18 21-15 en þeir höfðu hingað til ekki unnið Gunnar og Thomas í vetur. Í tvíliðaleik í stúlknaflokki sigruðu þær Rakel og Elín Þóra Elíasdóttir. Þær lögðu í úrslitum Margréti Jóhannsdóttur og Söru Högnadóttur, sem báðar spiluðu upp fyrir sig. Tvenndarleikinn sigruðu svo þau Ólafur Örn úr BH og Rakel úr TBR. Þau sigruðu Nökkva Rúnarsson og Jóhönnu Jóhannsdóttur nokkuð óvænt 21-10 11-21 21-11.

Gunnar Bjarki og Thomas Þór
|

Rakel og Margrét
|
Alexander Örn Kárason ÍA, Alda Karen Jónsdóttir TBR og Rakel Jóhannesdóttir TBR sigruðu því þrefalt á Vetrarmóti unglinga 2010!!!
|