28.09.2010
Reykjavíkurmót unglinga 2010
Fyrsta mót vetrarins leit dagsins ljós á laugardaginn sl. Reykjavíkurmót unglinga var haldið í TBR húsunum og fór mótið vel fram. Þar sem þetta var fyrsta unglingamót ársins var sérstaklega spennandi að fylgjast með þar sem mikið hefur verið um færslur milli flokka. Keppt var með útsláttarfyrirkomulagi en þeir sem töpuðu fyrsta leik í einliðaleik fóru í aukaflokk svo allir fengu minnst tvo leiki.
Greinilegt var að sumir höfðu æft af krafti í allt sumar og komu vel undan sumri á meðan aðrir eru enn að koma sér almennilega af stað. Þeir þurfa þó ekki að örvænta enda tímabilið rétt að hefjast.
Í Hnokka- og Tátuflokki sigruðu þau Alexander Örn Kárason úr ÍA og Alda Karen Jónsdóttir úr TBR. Í tvíliðaleik Hnokka sigruðu þeir Andri Árnason og Ormar Þór Harrason úr TBR og í Tátuflokki sigruðu þær Alda Karen Jónsdóttir og Margrét Nilsdóttir einnig úr TBR. Ekki var keppt í tvenndarleik í Hnokka og Tátuflokki að þessu sinni vegna lítillar þátttöku.
Sigurvegarar í einliðlaleik í Tátuflokki |

Alda Karen Jónsdóttir og Margrét Nilsdóttir
|
Í Sveina- og Meyjaflokki urðu sigurvegarar í einliðaleik þau Daníel Jóhannesson úr TBR og Sigríður Árnadóttir líka úr TBR. Í tvíliðaleik í Sveinaflokki sigruðu þeir Guðmundur Ágúst Thoroddssen og Stefán Ás Ingvarsson úr Aftureldingu. Í Meyjaflokki sigruðu þær Sigríður Árnadóttir og Jóna Kristín Hjartardóttir úr TBR. Í tvenndarleik sigruðu Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir. Sigríður er því þrefaldur Reykjavíkurmeistari 2010.
Sigurvegarar í einliðaleik í Sveina- og Meyjaflokki |
Daníel Jóhannesson og Stefán Ás Ingvarsson
|

Sigríður Árnadóttir og Jóna Kristín Hjartardóttir
|
Í Drengja- og Telpuflokki sigruðu í einliðaleik þau Steinn Þorkelsson úr ÍA og Margrét Finnbogadóttir úr TBR. Í tvíliðaleik í Drengjaflokki sigruðu þeir Sigurður Sverrir Gunnarsson og Þorkell Ingi Eriksson úr TBR. Í Telpuflokki í tvíliðaleik sigruðu þær Margrét Finnbogadóttir og Sædís Björk Jónsdóttir líka úr TBR. Í tvenndarleik sigruðu þau Þorkell Ingi Eriksson og Unnur Björk Elíasdóttir úr TBR.
Sigurvegarar í einliðaleik í Telpnaflokki |

Margrét Finnbogadóttir og Alexandra Ýr Stefánsdóttir
|
Í Pilta- og Stúlknaflokki sigruðu í einliðaleik þau Gunnar Bjarki Björnsson úr TBR og Rakel Jóhannesdóttir líka úr TBR. Í tvíliðaleik í Piltaflokki sigruðu þeir Gunnar Bjarki Björnsson og Thomas Þór Thomsen úr TBR og í Stúlknaflokki sigruðu þær Margrét Jóhannsdóttir og Sara Högnadóttir úr TBR. Í tvenndarleik sigruðu svo þau Gunnar Bjarki og Margrét Jóhannsdóttir úr TBR. Gunnar Bjarki sigraði því þrefallt í Piltaflokki.
Sigurvegarar í einliðaleik í Piltaflokki |

Gunnar Bjarki Björnsson og Nökkvi Rúnarsson
|
|