04.03.2011
Reykjavíkurmót 2011
Reykjavíkurmótið fór fram í TBR húsinu við Gnoðarvog um sl. helgi. Mótið var mjög jafnt og ljóst að nýr Reykjavíkurmeistari í karlaflokki yrði krýndur, þar sem að tveir af bestu badmintonspilurum landsins, bræðurnir Atli og Helgi Jóhannessynir voru báðir frá vegna meiðsla.
Einliðaleikur karla var galopinn fyrir mótið og greinilegt að allir ætluðu sér stóra hluti í mótinu, þrátt fyrir að margir teldu Bjarka Stefánsson líklegastan til að hampa gullinu. Bjarki stóð fyrir sínu og sigraði í mótinu eftir gríðarlega jafnan og skemmtilegan úrslitaleik gegn Róberti Þór Henn, en þeir koma báðir úr TBR. Leikurinn var mjög hraður og það var mikið spil. Það fór þó eins og áður sagði að Bjarki hafði betur og sigraði 21-18 26-24. Frábær sigur hjá Bjarka og hans fyrsti sigur í Meistaraflokki í einliðaleik.

Í einliðaleik kvenna var spennan ekki síðri, þó svo að mótið hafi spilast eins og fyrirfram var reiknað með. Eins og svo oft í vetur stóðu í úrslitaleiknum þær Rakel Jóhannesdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir, báðar úr TBR. Rakel og Snjólaug hafa barist í allan vetur og skipst á að hafa vFrekinninginn. Það var því töluverð eftirvænting eftir leiknum enda yfirleitt mikið spil og jafnt á öllum tölum. Snjólaug mætti virkilega einbeitt og ákveðin til leiks og tók forystuna strax og lét hana ekki af hendi allan leikinn. Rakel náði sér illa á strik og lék undir getu. Það skal þó ekki tekið af Snjólaugu að hún spilaði virkilega vel og pressaði Rakel allt til loka. Leikurinn endaði 21-11 21-10 fyrir Snjólaugu.

Úrslitaleikurinn í tvíliðaleik karla var sennilega mest spennandi úrslitaleikurinn í mótinu. Til úrslita léku þeir Arthúr Geir Jósefsson og Einar Óskarsson annars vegar og Bjarki Stefánsson og Daníel Thomsen hins vegar en allir koma þeir úr TBR. Arthúr óg Einar byrjuðu betur og höfðu forystu alla fyrstu lotuna og sigruðu hana 21-16. Bjarki og Daníel snéru þó blaðinu við í lotu tvö og unnu 21-16. Það þurfti því oddalotu til að finna sigurvegara. Arthúr og Einar leiddu alla leið upp í 18-15 en þá snérist leikurinn og með frábæru spili skoruðu Bjarki og Daníel 6 stig í röð og gátu fagnað Reykjavíkurmeistaratitlinum í tvíliðaleik karla.

Í tvíliðaleik kvenna hafa þær Snjólaug Jóhannsdóttir og Karitas Ósk Ólafsdóttir úr TBR verið nær ósigrandi í vetur. Á því varð engin breyting núna en þær léku til úrslita gegn Elínu Þóru Elíasdóttur og Rakel Jóhannesdóttur líka úr TBR. Snjólaug og Karitas sýndu enga miskunn og sigruðu örugglega 21-13 21-15.

Tvenndarleikurinn spilaðist algjörlega eftir bókinni og mættust í úrslitum þau lið sem fyrirfram voru talin sterkust í mótinu. Arthúr Geir og Halldóra Elín Jóhannsdóttir sem talin voru sigurstragnlegust stóðu undir væntingunum og sigruðu í úrslitaleiknum gegn Róberti Þór Henn og Karitas Ósk Ólafsdóttur, öll úr TBR. Leikurinn endaði 21-14 21-16.

|