23.12.2010
Jólaskólamót 2010
Skólasamstarf TBR og grunnskólanna sem voru með börn í kennslu á haustönn lauk með pompi og prakt í gær, 22. des, þegar jólaskólamótið var haldið. Jólaskólamótið er hápunkturinn á samstarfi TBR og sex grunnskóla í Reykjavík; Austurbæjarskóla, Álftamýrarskóla, Hvassaleitisskóla, Langholtsskóla, Laugarnesskóla og Vogaskóla.
Börn í 4. bekk fá fría kennslu í eina önn og gefins spaða frá TBR. Skólasamstarfið er einn stærsti liðurinn í útbreiðslustarfi félagsins.
Mótið heppnaðist mjög vel og fengu allir að spila 3 leiki. Mótið er vinamót sem þýðir að allir eru sigurvegarar og allir fá verðlaun. Reynt verður að búa til æfingatíma fyrir þá sem vilja halda áfram eftir áramót

|