Jólamót Morgunstjarnanna 2010
Morgunstjörnur er hópur kvenna sem spilar í kvennatímum á vegum TBR á þriðjudags- og föstudagsmorgnum. Það er Jóhann Kjartansson sem sér um kennslu í tímunum. Þær héldu sitt árlega jólamót nú fyrir skemmstu.

Sestar til borðs eftir erfitt mót
Jólamótið er hápunkturinn á haustönninni hjá Morgunstjörununum, enda ekki eingöngu um mót að ræða heldur halda þær jólahlaðborð eftir mótið. Mótið hefst snemma morguns og svo tekur hlaðborðið við strax á eftir. Allar mæta með eitthvað gómsætt að heiman og svo er haldin smá gleði í félagsheimili TBR aðeins fram eftir degi.


Eins og sjá má á þessum myndum var hart barist og ekkert gefið eftir.

Hildur, Jóhanna og Eileen
Sigurvegari í mótinu í ár var Jóhanna Emilsdóttir. Hér má sjá hana ásamt öðrum verðlaunahöfum mótsins.
|