frístundakort

rig

 

 

Golfmót badmintonmanna 2010

Hópur

Golfmót badmintonmanna var haldið á Garðavelli á Akranesi sunnudaginn 5. september sl. Það er Árni Þór Hallgrímsson þjálfari í TBR sem heldur utan um mótið. Keppt var með punktafyrirkomulagi í þremur flokkum; Karlaflokki (fgj 0-20), Karlaflokki (fgj. 20-36) og kvennaflokki (fgj 0-36). Þess má geta að metþátttaka var í kvennaflokki í ár.

Úrslit urðu sem hér segir:

Karlaflokkur (fgj. 0-20)

1. sæti: Víðir Bragason á 33 punktum
2. sæti: Eiríkur Ólafsson á 33 punktum
3. sæti: Haraldur Jens Guðmundsson á 33 punktum

sigurvegarar 0-20
Haraldur, Víðir og Eríkur

Eins og sjá má voru þeir allir á jafnmörgum punktum en Víðir lék best á síðustu sex holunum og reiknast því sem sigurvegari.

Karlaflokkur (fgj. 20-36)

1. sæti: Broddi Kristjánsson á 39 punktum
2. sæti: Sigurður Ámundason á 38 punktum
3. sæti: Vilhjálmur Sturla Eiríksson á 37 punktum

sigurvegarar í karlaflokki 20-36
Sigurður, Broddi og Vilhjálmur

Broddi Kristjánsson er sennilega betur þekktur fyrir afrek sín á badmintonvellinum en á golfvellinum en stóð þó uppi sem sigurvegari á golfmótinu í ár.

Kvennaflokkur (Fgj 0-36)

1. sæti: Júlíana Jónsdóttir á 33 punktum
2. sæti: Elín Agnarsdóttir á 32 punktum
3. sæti: Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir á 32 punktum

Sigurvegarar Kvennaflokki
Ingibjörg Steinunn, Júlína og Elín

Einnig voru veitt nándarverðlaun og verðlaun fyrir lengsta teighögg.

næst holu á 3.braut
Helga Björnsdóttir
- Næst holu á 3. braut, 0,72m -

Mynd Vantar

Kjartan Einarsson
- Næstur holu á 18. braut, 1,85m -

Lengsta Drive í karlaflokki
Hjalti Harðarson
- Lengsta teighögg karla -

Lengsta teighögg kvenna
Ingibjörg Ketilsdóttir
- Lengsta teighögg kvenna -