Deildakeppni TBR lauk nú um helgina. TBR sigraði í Meistardeild og B-deild. BH sigraði í A-deildinni eftir úrslitaleik gegn TBR liði.
Í Meistaradeild sigraði lið TBR-Garparnir, en úrslit réðust ekki fyrr en í síðasta tvenndarleiknum gegn liði TBR-Bara. Garparnir sigruðu í tvenndarleiknum og þar með sigruðu lið TBR-Bara 5-3 sem dugði þeim til sigurs. Í öðru sæti endaði lið TBR-Team Thomsen sem hafði vonast eftir jafntefli í leik Garpanna og Bara, en það hefði dugað þeim til sigurs. TBR-Bara var hins vegar í þeirri stöðu að verða að vinna leikinn gegn Görpunum til að fagna sigri. Þessi úrslit þýddu, eins og áður sagði, að Garparnir sigruðu og Team Thomsen lenti í öðru sæti.
Bjarki fyrirliði, Jónas, Magnús, Róbert, Halldóra, Margrét og Karitas
Í A-Deild var úrslitaleikur milli BH-Hálfgaflarar og TBR-Noodle Express. Leikurinn var mjög spennandi og réðust úrslit í síðasta tvenndarleiknum. Það fór þó svo að lið BH stóð uppi sem sigurvegari og endaði leikurinn 4-3.
TBR-Noodle Express lenti í öðru sæti í A-deildinni
Í B-deild sigraði lið TBR-Guðnarnir eftir úrslitaleik gegn BH-Nöglunum. Leikurinn endaði 5-2 og var nokkuð öruggur sigur af hálfu TBR-liðsins.
TBR-Guðnarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í B-deildinni
Til að sjá nánari úrslit leikja í Deildakeppninni smellið hér
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur Gnoðarvogur 1 s: 581-2266 tbr@tbr.is