02.02.2011
Stór hópur frá TBR keppti í Hróarskeldu í Danmörku
Keppnishópur fullorðinna fór til Danmerkur nú í janúar og keppti þar á stóru móti sem fram fór í Hróarskeldu. Keppt var í mismunandi flokkum í öllum greinum. Hópurinn var stór og mikill, 24 keppendur auk þjálfara og farastjóra.

Hluti af hópnum
Haldið var af stað á fimmtudagsmorgni og flogið til Kaupmannahafnar. Þar voru fengnir bílaleigubílar og gist í stórum og góðum sumarhúsum.
Hæst bera að nefna að í B-flokki mótsins varð sigurvegari í einliðaleik kvenna Þorbjörg Kristinsdóttir. Frábær árangur hjá Þorbjörgu sem hefur virkilega verið að sækja í sig veðrið undanfarið.
Í A-flokki kvenna komst Halldóra Elín Jóhannsdóttir í úrslitaleikinn en varð að láta í minni pokann gegn dönskum andstæðingi.

Róbert Þór Henn hvílir sig milli leikja
Í tvíliðaleikjunum stóðu þeir Birkir Steinn Erlingsson og Róbert Þór Henn sig einna best og komust í undanúrslit í B-flokki.
Ferðin heppnaðist í alla staði vel. Hópurinn var félaginu til sóma bæði innan vallar sem utan og er félagið mjög stolt af glæsilegum hópi keppenda sinna. |