29.04.2011
Aðalfundur TBR 2011
Aðalfundur TBR var haldinn 26. apríl sl. Á fundinum voru venjuleg fundarstörf, kosning í stjórn og eins og venjulega er kosið um formann. Farið var yfir ársreiking félagsins og hann samþykktur.
Jóhannes Helgason var endurkjörinn formaður félagsins án mótframboðs. Halldóra Elín Jóhannsdóttir og Áslaug Jónsdóttir héldu sætum sínum í stjórn félagsins án mótframboðs. Þorbjörg Kristinsdóttir er áfram varafulltrúi í stjórn og Einar Óskarsson áfram fulltrúi ungu kynslóðarinnar í stjórn.
Annars var fundurinn tíðindalítill og greinilegt að ánægja með rekstur félagsins.

Stjórn TBR
|