Jólaskólamótið
TBR er í samstarfi við 10 skóla í Reykjavík og fá börn í 4. bekk í þessum skólum að koma í eina önn frítt í badminton. Að auki fá þau gefins spaða frá félaginu. Í lok annar er svo haldið mót fyrir krakkana. Þetta mót kallast Jólaskólamótið fyrir börnin úr þeim skólum sem eru fyrir áramót.
Í ár voru það Austurbæjarskóli, Álftamýrarskóli, Ártúnsskóli, Laugarnesskóli, Langholtsskóli og Vogaskóli.
Fyrirkomulagið á mótinu er þannig að allir spila 3 - 4 leiki og skipt er eftir kynjum. Í lokin fá svo allir viðurkenningu sem venjulega eru bolir merktir félaginu.

|