frístundakort

rig

 

 

08.02.2010

TBR með yfirburði í Deildakeppni BSÍ

Lið frá TBR sigruðu í öllum þremur deildunum í Deildakeppni BSÍ sem fram fór um helgina. Í Meistaradeild sigrarði lið TBR-Yfirvaldið, í A-deildinni sigraði TBR-Merðir og í B-deild TBR-Harðjaxlar. Að auki voru öll silfurliðin frá TBR.

Keppnin í Meistaradeildinni var gríðarlega jöfn og spennandi allt fram á síðustu stig. Fyrir síðustu umferðina voru þrjú lið í baráttunni um titilinn og öll áttu þau góða möguleika á að hampa sigri. Í lokaumferðinni mættust TBR-Yfirvaldið og TBR-Öllarar en bæði þessi lið áttu möguleika á sigri. Einnig mættust TBR-Leynivopnin og TBR-Gellur. Leynivopnin voru með í baráttunni en þurftu á stórum sigri að halda og treysta á úrslit úr hinni viðureigninni. Það fór þó svo að TBR-Yfirvaldið hafði betur gegn TBR-Öllurum, með 5 vinningum gegn 3, og gátu þar með fagnað sigri í Deildakeppni BSÍ 2010.

Meistaraliðið skipuðu þau: Magnús Ingi Helgason, Bjarki Stefánsson, Arthúr Geir Jósefsson, Snjólaug Jóhannsdóttir, Þorbjörg Kristinsdóttir og Hanna María Guðbjartsdóttir.

Í A-deildinni mættust í úrslitum TBR-Merðir og TBR-Geitunugar. Geitungarnir áttu titil að verja frá því í fyrra og mættu því ákveðnir til leiks. Merðirnir sem er lið af ungum og upprennandi leikmönnum sem komið hafa úr unglingastarfi TBR voru þó ekki á þeim buxunum að láta í minni pokann. Merðirnir gerðu út um uppgjörið strax í byrjun og sigruðu viðureignina með 5 vinningum gegn 2.

Í sigurliðinu voru þau: Jónas Baldursson, Kjartan Pálsson, Ívar Oddsson, Nökkvi Rúnarsson, Margrét Jóhannsdóttir, Elisabeth Christensen og Ásta Ægisdóttir.

í B-deildinni mættust í úrslitaleik TBR-Harðjaxlar og TBR Baráttujaxlar. Tvö lið úr hóp sem hefur myndast innan félagsins sem kallar sig Jaxlar. Harðjaxlarnir höfðu betur í úrslitaleiknum með 6 vinningum gegn 1.

Harðjaxlana skipuðu: Einar Sverrisson, Conor Byrne, Högni Hróarsson, Snorri Hreggviðsson, Alexander Eðvarðsson, Þórunn Óskarsdóttir, Sigrún Marteinsdóttir og Sylvía Gústafsdóttir