frístundakort

rig

 

 

Vorskólamót 2009

Vorskólamótið var haldið í TBR laugardaginn 25. apríl sl. Mótið er fyrir krakkana sem taka þátt í samstarfsverkefni TBR og nokkurra grunnskóla í Reykjavík.

Krakkarnir sem öll eru í 4. bekk í sínum skóla hafa æft badminton einu sinni í viku í TBR frítt frá áramótum. Mótið er haldið á hverju ári og mæta krakkarnir í TBR um morguninn og spilað er fram til að verða tvö. Keppt er ein lota og spila allir 4-5 leiki. Að lokum fá svo allir verðlaunapening sem viðurkenningu fyrir þátttöku í mótinu eins og stefna ÍSÍ fyrir þennan aldurshóp segir til um.

Eftir mótið fara krakkarnir svo ásamt foreldrum upp í félagsheimili þar sem þau gæða sér á hlaðborði sem þau sjálf hafa tekið þátt í að undirbúa og komið með að heiman.

vorskólamót