Börn og unglingar í Stykkishólm
Börn og unglingar í keppnishópi félagsins munu um helgina halda í Stykkishólm í æfingabúðir. Um er að ræða keppendur úr flokkum U15 og U17. Þessi ferð í Hólminn er orðinn árlegur viðburður hjá krökkunum og hefur heppnastgríðarlega vel hingað til.
Krakkarnir mæta í TBR á laugardegi og er ekið í Hólminn með rútu. Þar er svo æft af krafti fram eftir degi en eftir erfiðar æfingar fara krakkarnir svo í sund. Um kvöldið er svo farið út að borða og svo er kvöldvaka og krakkarnir sjá um skemmtiatriði. Eftir kvöldvöku er svo farið í háttinn og gist í íþróttahúsinu. Á sunnudagsmorgun er svo aftur æfing hjá krökkunum og svo er gengið frá og farið í bæinn aftur fljótlega eftir hádegið.
Það er Jóhann Kjartansson yfirþjálfari TBR ásamt fleiri þjálfurum sem fara með í för.
Þessi ferð er þó ekki eingöngu nýtt sem æfingaferð heldur einnig til að hrista saman keppnishópinn enda ekki langt í Íslandsmót unglinga. Félagslegi þátturinn er alveg jafn mikilvægur og sá líkamlegi í ferðum sem þessum.
|