forsíða    félagið    myndir    lausir tímar    verðskrá    börn og unglingar    yonex    tenglar    hafa samband

stjórn  starfsfólk    keppendur    hópar    trimm    unglingaráð    sumarskóli   vímuvarnastefna   eineltisáætlun   íþróttanámsskrá

frístundakort

 

 

 

Félagið

Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur er að Gnoðarvogi 1. Félagið á tvö íþróttahús, einkum ætluð fyrir badminton. Í húsunum eru samtals 17 badmintonvellir.

Badmintoníþróttin er ein vinsælasta almenningsíþróttin í dag. Fólk á öllum aldri hittist einu sinni í viku eða oftar, og keppir eða leikur sér í badminton. Sumir æfa mörgum sinnum í viku hverri og keppa til árangurs í mótum, en flestir stunda badminton sér til ánægju og heilsuræktar. Fólk finnur sér andstæðinga við sitt hæfi, og best er ef menn eru sem jafnastir á vellinum.

Unglingatímar eru flesta daga vikunnar. Þjálfarar eru Jóhann Kjartansson, Árni Þór Hallgrímsson og Jónas Huang. Tímarnir eru ætlaðir börnum og unglingum frá 9 ára aldri.

Byrjendanámskeið eru á sunndögum kl 12:40. Kennari er Vignir Sigurðsson. Hér er um að ræða 6 vikna námskeið, þar sem undirstöður badmintoníþróttarinnar eru kenndar.

Kvennatímar eru á þriðjudags- og föstudagsmorgnum kl. 9.20-10.10. Jóhann Kjartansson er þjálfari. Á eftir kvennatímunum er boðið upp á molakaffi.

Borðtennisdeild Víkings hefur aðstöðu í TBR-húsum. Flest borðtennismótin eru haldin hér.