forsíða  félagið  myndir  lausir tímar  verðskrá  börn og unglingar  yonex  tenglar  hafa samband  

æfingatafla  skólabadminton  6 - 8 ára  9 - 12 ára  13 - 16 ára  framhaldsskólatími  keppnishópur unglinga

frístundakort

rig

 

 

9-12 ára

Tímar fyrir börn á aldrinum 9-12 ára eru vinsælustu unglingatímarnir í TBR. Hér eru á ferðinni börn sem oft á tíðum eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni sem og þau sem eru örlítið lengra komin og jafnvel farin að keppa í stöku mótum. Í þessum tímum eru markmiðin jafn mismunandi og þau eru mörg. Sum hver ætla sér langt í íþróttinni á meðan aðrir vilja koma og spila og leika sér með sínum vinum og félögum. Reynt er eftir fremsta megni að gera æfingarnar krefjandi fyrir alla.

Í þessum tímum er mikið spilað og reglurnar kenndar. Farið er í grunninn á fleiri tækniatriðum svo sem; netspil, bakhönd, dropp og smass svo dæmi séu tekin. Einnig er farið lauslega yfir helstu atriði fótaburðar og kenndar réttar hreyfingar út í horn og aftur til baka og hvernig skuli slá og hreyfa sig á sama tíma.

Markmið tímanna er að halda úti unglingastarfi fyrir alla þá sem eru á þessum aldri og hafa áhuga á að spila badminton. Allir geta skráð sig og fengið kennslu. TBR reynir stöðugt að stuðla að bættum árangri leikmanna sinna og leita leiða til að hver og einn bæti það sem hann/hún þarf að bæta hverju sinni. Einnig eru þessir tímar góð leið fyrir þjálfara til að koma auga á þá sem virkilega vilja leggja sig fram og verða keppnisfólk. Öllum þeim sem spila í þessum tímum er heimilt að skrá sig í mót sem haldin eru yfir veturinn og hvetur TBR eindregið til þátttöku í mótum fyrir þennan hóp.